Flýtileiðir
  • Venjulegt letur
  • Stórt letur

Um KLH

Meginmál
Klínísk lífefnafræðistofa Holtasmára (KLH ehf)
Fyrst íslenskra rannsóknastofa á heilbrigðissviði til að hljóta alþjóðlega faggildingu
 
Klínísk lífefnafræðistofa, Holtasmára ehf. eða KLH ehf. er sérhönnuð rannsóknastofa sem hefur starfað í 38 ár við blóðmælingar í tengslum við rannsóknir Hjartaverndar og annast lífsýnasafn Hjartaverndar.  Til ársloka 2004 var rannsóknastofan rekin sem sérstök rekstrareining innan Hjartaverndar en frá ársbyrjun 2005 sem einkahlutafélag.  Rannsóknastofan er til húsa að Holtasmára 1, Kópavogi en í þeirri byggingu er jafnframt öll starfsemi Hjartaverndar.  Rannsóknastofan er sérhönnuð og var m.a. útbúin með það að markmiði að geta tekist á við öll verkefni sem óskað var eftir í tengslum við Öldrunarrannsókn Hjartaverndar (AGES Reykjavik Study).  KLH vinnur einnig að öðrum rannsóknaverkefnum á vegum Hjartaverndar og tilteknum verkefnum í samvinnu við ýmsa aðila bæði innlenda og erlenda, þ.m.t. mælingar í klínískum lyfjarannsóknum.

Eins og fyrr sagði er grunnur að starfsemi rannsóknastofunnar hefðbundnar klínískar lífefnarannsóknir á blóði, blóðvökva og þvagi, sem framkvæmdar hafa verið allt frá stofnun Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar 1967.  Að auki hefur um árabil verið unnið að rannsóknum á DNA og athugaðir ýmsir erfðabreytileikar, einkum þeir sem tengjast hjarta- og æðasjúkdómum en fyrirséður er mikill vöxtur á því sviði.  Einangrun hvítra blóðfruma í Öldrunarrannsókninni hefur einnig opnað möguleika á nýrri nálgun þeirra viðfangsefna sem unnið er að.