Flýtileiðir
  • Venjulegt letur
  • Stórt letur

Faggilding

Meginmál
Þann 20. desember 2005 tók KLH við vottorði frá SWEDAC, faggildingarstofnun Svíþjóðar, því til staðfestingar að algengustu mælingar KLH væru faggildar samkvæmt ISO 15189:2003 staðlinum, “Medical laboratories – Particular requirements for quality and competence”. Faggilding er staðfesting á því að rannsóknastofan uppfylli kröfur er varða tæki, húsnæði og hæfni starfsfólks og jafnframt að öflugt innra eftirlit í formi gæðakerfis sé til staðar eins og tilgreint er í staðlinum ISO 15189. Þannig á að vera tryggt að mælingar séu ávallt framkvæmdar af hæfum aðilum þar sem fagmennska er höfð í fyrirrúmi.
Faggildingarsvið Neytendastofu er hinn lögformlegi aðili á Íslandi sem annast faggildingu sbr. lög nr. 100 frá 1992 um vog, mál og faggildingu. Í gildi er samningur milli þeirra og SWEDAC um aðstoð við faggildingarmat, en tæknilegir fulltrúar frá SWEDAC annast árlegt eftirlit og gefa út vottorð um faggildingu.

Alls hafa 15 algengustu mælingarnar hlotið faggildingu.